Góð þáttaka í vetrarmóti Smára – úrslit
Fyrsta vetrarmót Smára fór fram laugardaginn 19. febrúar við Reiðhöllina á Flúðum.
Samkvæmt upplýsingum frá hestamannafélaginu Smára var þátttaka framar vonum, um 50 skráningar voru í keppnina og er greinilegur hugur í hestamönnum á nýju ári. Góð þátttaka var í pollaflokknum og fengu allir viðurkenningu fyrir þátttökuna, það verður spennandi að fylgjast með þessum flotta hópi á næstu mótum. Mótastjórn þakkar öllum fyrir þátttökuna og þeim sem komu að mótinu
Næsta Vetrarmót verður þann 19 mars.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Barnaflokkur
1.Helgi Valdimar Sigurðsson, Hugnir frá Skollagróf 6.vetra
2.Viktor Máni Sigurðsson, Þerna 10.vetra
3.Rúnar Guðjónsson, Neisti frá Melum 12.vetra
Unglingaflokkur
1.Sigurbjörg Björnsdóttir,Silfurdís frá Vorsabæ 2, 5.vetra
2.Gunnlaugur Bjarnason,Andrá frá Blesastöðum 2 a, 5.vetra
3.Rosmarie Huld Tómasdóttir,Blær frá Vestra Geldingaholti 13.vetra
4.Björgvin Ólafsson,Núpur frá Eystra Fróðholti 15.vetra
5.Hrafnhildur Magnúsdóttir,Kráka frá Syðra Langholti 6.vetra
Ungmennaflokkur
1.Matthildur María Guðmundsdóttir Þytur 8.vetra
Unghrossaflokkur
1.Gunnar Jónsson, Stjarni frá Skeiðháholti 3, 4.vetra
2.Gunnlaugur Bjarnason, Sandra frá Blesastöðum 1a 4.vetra
3.Jóhanna Ingólfsdóttir,Lygna frá Hrafnkelsstöðum 5.vetra
4. Guðmann Unnsteinsson,Kulur frá Skollagróf 4.vetra
5.Sigurbjörg Björnsdóttir,Fjöður frá Vorsabæ 2, 4.vetra
Fullorðinsflokkur, flokkur 2
1.Hjálmar Gunnarsson,Sameignagrána 8.vetra
2.Guðjón Birgisson, Hrímnir 15. vetra
3.Vallgeir Jónsson, Katla frá Þverspyrnu 7.vetra
4.Ása María Ásgeirsdóttir Náttsól frá Kaldbak 11.vetra
Fullorðinsflokkur, flokkur 1
1.Guðmann Unnsteinsson,Breyting frá Haga 8.vetra
2.Aðalheiður Einarsdóttir, Blöndal frá Skagaströnd 8.vetra
3.Cora Claas, Agni frá Blesastöðum 9.vetra
4.Sigfús Guðmundsson,Prins frá Vestra Geldingaholti 11.vetra
5.Grímur Sigurðsson,Glaumur frá Miðskeri 15.vetra
Fleiri myndir eftir Sigurð Sigmundsson verða birtar á heimasíðu Smára.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH