Goðamót Léttis
Goðamót Léttis verður haldið laugardaginn 3. júní. Skráning er hafin á slóðinni http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add og er skráningargjaldið er 2,500 kr. fyrir hverja skráningu nema í pollaflokk en í hann kostar 1000 kr.
Skráningarfresti lýkur á miðnætti miðvikudagsins 31. Maí
Keppt verður í:
Fimmgangur – opinn flokkur (börn – unglingar – ungmenni)
Fjórgangi V1 – börn – unglingar – ungmenni
Tölt T1 – börn – unglingar – ungmenni
Tölt T2 – Opinn flokkur (börn – unglingar – ungmenni)
Tölt T7 – Opinn flokkur (börn – unglingar – ungmenni)
Pollaflokkur – 1000 kr. kostar í pollaflokkinn en í skráningarkerfinu er það „pollaflokkur“ sem ríður sjálfur 1 hring og „annað“ sem teymt er undir 1 hring.
Æskulýðsnefnd áskilur sér rétt til að fella niður greinar ef ekki næst næg þátttaka í þær. Ef ekki eru fleiri en 5 í grein verður aðeins riðin forkeppni.
Með kveðju, æskulýðsnefnd Léttis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson