Góður árangur á lokaprófi
Hestamennskunni fylgir gjarna mikið flóð verðlauna og viðurkenninga, og löng hefð er fyrir viðurkenningum fyrir góðan árangur í námi við hestafræðideild Hólaskóla.
Hólamenn eru stoltir af því að fyrstu handhafar BS-gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu brautskráðust frá skólanum á föstudaginn. Eins og við höfum áður skýrt frá, hlutu þær Christina Mai og Carrie Lyons Brandt viðurkenningar fyrir góðan árangur í náminu. Carrie er handhafi Morgunblaðshnakksins, sem veittur er fyrir besta árangur í reiðmennskugreinum, og skólinn veitti Christinu ritverkið Íslenska hestinn, fyrir hæstu aðaleinkunn.
Fram að þessu hefur Félag tamningamanna veitt sérstaka viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á lokaprófi í reiðmennsku, í diplómunáminu í reiðmennsku og þjálfun („gamla reiðkennaraprófinu“). Sem kunnugt er, er verið að leggja þá braut niður sem sjálfstætt diplómunám, og mun síðasti nemendahópurinn ljúka náminu nú í júní. Margir þættir þess náms eru þó sambærilegir við BS-námið í reiðmennsku og reiðkennslu, meðal annars lokaprófið í reiðmennsku. Próf þetta er byggt upp úr fjölmörgum þáttum reiðmennskunnar og koma bæði gangtegundir og hlýðniæfingar við sögu.
Áðurnefnd viðurkenning FT er bundin við diplómunámið, en okkur finnst ástæða til að láta þess getið að það var hún Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir, sem náði bestum árangri á lokaprófi í reiðmennsku í maí 2013. Hallfríður þreytti prófið á hryssunni sinni, Kolgerði frá Vestri- Leirárgörðum. Þær stöllur hafa víða sést saman, og hér fylgir mynd frá úrtöku fyrir Landsmót 2012.
Við óskum Hallfríði innilega til hamingju með glæstan árangur og velfarnaðar í framtíðinni.
Þess má svo að lokum geta að frestur til að sækja um nám við Háskólann á Hólum veturinn 2013 -2014 rennur út 5. júní.
