Góður árangur yngri knapa í töltgreinum

  • 1. desember 2023
  • Fréttir

Svandís Aitken og Fjöður frá Hrísakoti standa efst á stöðulista í unglingaflokki

Stöðulistar ársins

Keppnisárinu á Íslandi sem og víðast annars staðar er nú lokið og allir mótshaldarar ættu að vera búnir að skila inn niðurstöðum. Þá er gaman að skoða stöðulista ársins í mismunandi greinum og það er það sem Eiðfaxi hefur verið að gera á síðustu vikum.

Nú höfum við kallað fram stöðulista í töltkeppni í yngri flokkum. Annars vegar keppni í T1 í ungmenna og unglingaflokki og hins vegar T3 í barnaflokki.

Efstur á stöðulista ársins í ungmennaflokki er Egill Már Þórsson á Össu frá Miðhúsum með einkunnina 7,77. Heimsmeistarinn í þessari grein, Herdís Björg Jóhannsdóttir og Kvarði frá Pulu, eru ekki langt undan með 7,73 í einkunn. Þriðja á listanum er svo Glódís Rún Sigurðardóttir og Drumbur frá Víðivöllum fremri með 7,70.

Í unglingaflokki var það Svandís Aitken Sævarsdóttir sem náði besta árangri ársins í T1 á Fjöður frá Hrísakoti með einkunnina 7,43. Ragnar Snær Viðarsson og Þormar frá Neðri-Hrepp hlutu 7,13 og þriðja á listanum ere Elva Rún Jónsdóttir á Straumi frá Hofsstöðum, Garðabæ með 7,10.

Apríl Björk Þórisdóttir er efst á stöðulista barna í T3 en ekki er keppt í T1 í barnaflokki. Apríl hlaut einkunnin 6,73 á Lilju frá Kvistum. Í öðru sæti á listanum er Guðrún Elín Egilsdóttir á Rökkva frá Miðhúsum með 6,50 í einkunn. Jöfn í þriðja til fjórða sæti eru þau Kristín Rut Jónsdóttir á Roða frá Margrétarhofi og Róbert Darri Edwardsson á Sömbu frá Ásmúla með einkunnina 6,43.

 

Tölt T1 – Ungmennaflokkur
# Knapi Hross Einkunn
1 Egill Már Þórsson Assa frá Miðhúsum 7,77
2 Herdís Björg Jóhannsdóttir Kvarði frá Pulu 7,73
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Drumbur frá Víðivöllum fremri 7,7
4 Jón Ársæll Bergmann Frár frá Sandhól 7,6
5 Benedikt Ólafsson Biskup frá Ólafshaga 7,57
6 Védís Huld Sigurðardóttir Ísak frá Þjórsárbakka 7,43
7 Signý Sól Snorradóttir Kolbeinn frá Horni I 7,43
8 Jón Ársæll Bergmann Móeiður frá Vestra-Fíflholti 7,43
9 Jón Ársæll Bergmann Sigur Ósk frá Íbishóli 7,43
10 Sigurður Baldur Ríkharðsson Trymbill frá Traðarlandi 7,3
11 Hekla Rán Hannesdóttir Agla frá Fákshólum 7,3
12 Kristján Árni Birgisson Rökkvi frá Hólaborg 7,23
13 Hekla Rán Hannesdóttir Grímur frá Skógarási 7,17
14 Eva Kærnested Nói frá Vatnsleysu 7,07
15 Kristófer Darri Sigurðsson Sólon frá Heimahaga 7
Tölt T1 – Unglingaflokkur
# Knapi Hross Einkunn
1 Svandís Aitken Sævarsdóttir Fjöður frá Hrísakoti 7,43
2 Ragnar Snær Viðarsson Þormar frá Neðri-Hrepp 7,13
3 Elva Rún Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 7,1
4 Sigurbjörg Helgadóttir Elva frá Auðsholtshjáleigu 7,07
5 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Sigð frá Syðri-Gegnishólum 7,07
6 Matthías Sigurðsson Drottning frá Íbishóli 7
7 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snillingur frá Sólheimum 6,93
8 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Sumarliði frá Hárlaugsstöðum 2 6,87
9 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Jökull frá Rauðalæk 6,87
10 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum 6,8
11 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þytur frá Skáney 6,8
12 Guðný Dís Jónsdóttir Hraunar frá Vorsabæ II 6,8
13 Dagur Sigurðarson Gróa frá Þjóðólfshaga 1 6,8
14 Herdís Björg Jóhannsdóttir Karólína frá Pulu 6,77
15 Fanndís Helgadóttir Garpur frá Skúfslæk 6,77
Tölt T3 – Barnaflokkur
# Knapi Hross Einkunn
1 Apríl Björk Þórisdóttir Lilja frá Kvistum 6,73
2 Guðrún Elín Egilsdóttir Rökkvi frá Miðhúsum 6,50
3 Kristín Rut Jónsdóttir Roði frá Margrétarhofi 6,43
4 Róbert Darri Edwardsson Samba frá Ásmúla 6,43
5 Apríl Björk Þórisdóttir Sikill frá Árbæjarhjáleigu II 6,40
6 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Gustur frá Efri-Þverá 6,30
7 Hjördís Halla Þórarinsdóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi 6,17
8 Þórhildur Helgadóttir Kóngur frá Korpu 6,17
9 Kári Sveinbjörnsson Nýey frá Feti 6,13
10 Ari Osterhammer Gunnarsson Sprettur frá Brimilsvöllum 6,10
11 Viktor Arnbro Þórhallsson Glitnir frá Ysta-Gerði 6,10
12 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Díva frá Bakkakoti 6,07
13 Arnór Darri Kristinsson Loki frá Litlu-Brekku 6,07
14 Svala Björk Hlynsdóttir Selma frá Auðsholtshjáleigu 6,07
15 París Anna Hilmisdóttir Eldar frá Efra – Holti 6,00
16 Ari Osterhammer Gunnarsson Fönix frá Brimilsvöllum 6,00
17 Þórhildur Helgadóttir Kornelíus frá Kirkjubæ 6,00
18 Elimar Elvarsson Urður frá Strandarhjáleigu 6,00

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link