Gott bakland
Hestamannafélagið Sprettur var stofnað árið 2012 eftir að hestamannafélögin Andvari og Gustur sameinuðust. Sprettur hefur verið mjög áberandi í ár en Íslandsmótin voru haldin þar sem og úrtakan fyrir Heimsmeistaramót, Þeir allra sterkustu og áhugamannadeildin svo eitthvað sé nefnt. Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Spretts, er einn af forsvarsmönnum félagsins og hefur átt stóran þátt í velgengni þess.
„Það er ofboðslega mikilvægt að hafa trú á því sem þú ert að selja. Ég hef trú á þessu sem er í gangi hér í Spretti. Ég hef trú á þessu svæði og fólkinu í félaginu og þess vegna veit ég að það sem ég lofa það mun standa, því félagið er það öflugt“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands