Norðurlandamót „Gott fyrir okkur á Norðurlöndum að koma saman“

  • 5. ágúst 2026
  • Sjónvarp Fréttir

Saga Haugen Agnarsdóttir og Anne Stine Haugen

Viðtal við Anne Stine Haugen

Norðurlandamótið í hestaíþróttum hélt áfram í dag og hægt er að fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV.

Anne Stine Haugen keppir á mótinu fyrir hönd síns heimslands Noregs, hún er á hryssu úr eigin ræktun en hún býr og starfar á Gavnholt í Danmörku ásamt manni sínum Agnari Snorra Stefánssyni. Með þeim á mótinu er m.a. dóttir þeirra Saga Haugen Agnarsdóttir sem er aðal stuðningsmaðurinn á svæðinu og sér til þess að knaparnir fái viðeigandi hvatningu þegar þeir ríða í brautina.

Ásta Björk Friðjónsdóttir hitti á þær mægður í dag og ræddi við Anne Stine um Norðurlandamótið og ýmsu því tengdu, til stóð að taka líka viðtal við Sögu sem stóð við hlið móður sinnar en eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan þurfti hún að rjúka til sinna skyldu starfa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link