,,Gott tölt og gott geðslag er það sem skiptir máli“
Björn Grétar og Harpa hrossaræktendur að Ytra-Vallholti
Að Ytra-Vallholti í Skagafirði búa hjónin Björn Grétar Friðriksson og Harpa H. Hafsteinsdóttir með fjölskyldu sinni, en þau tóku við búi af foreldrum Hörpu árið 1999. Þar stunda þau hrossarækt og eru einnig með sauðfjárbúskap. Hrossarækt þeirra hefur vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum en hún byggir á hryssunni Kolfinnu frá Ytra-Vallholti sem var undan Kolfinni frá Kjarnholtum I og Stjörnu frá Ytra-Vallholti. Jörðin Ytra-Vallholt er mjög grasgefin en stærð hennar er um 250 hektarar. Hesthús aðstöðu hafa þau fyrir 10 hross en þá hafa þau einnig verið í samstarfi við Bjarna Jónasson sem hefur sýnt nær öll hross úr þeirra eigu sem komið hafa til dóms.

Jörðin Ytra-Vallholt er grasgefin
Allar ræktunarhryssur út af Kolfinnu
En hversu mörgum hryssum eru þau að halda og hverjar eru þær? ,,Fyrsta skal nefna heiðursverðlaunahryssuna Glettu (ae.8,49), sem er undan Kolfinnu og Kveik frá Miðsitju, dætur hennar þær Kátínu (ae.8,31),undan Andvara frá Ey I og Kveðju (ae.8,19) sem er undan Korgi frá Ingólfshvoli. Þá er það Gnótt (ae.8,17) sem er einnig undan Kolfinnu en faðir hennar er Andvari frá Ey I. Brynja (ae.7,99) en hún er undan Glaumi frá Ytra-Vallholti sem var undan Kolfinnu og Létti frá Sauárkróki og að lokum Reising (ae.8,42), sem haldið var nú í fyrsta sinn en hún er undan Brynju og Kná frá Ytra-Vallholti.“ Alls héldu þau því sex hryssum í sumar en hvaða stóðhestar urðu fyrir valinu í ár? „Við notuðum þá Spaða frá Stuðlum, Þráinn frá Flagbjarnarholti, Dofra frá Sauðárkróki, Einir frá Enni, Börk frá Fákshólum og Kistil frá Ytra-Vallholti.“
Góður árangur í ár
Árið 2020 voru fjögur hross sýnd frá Ytra-Vallholti þau Kveðja, Reising, Dalur og Dís. Meðalaldur sýndra hrossa er 5,3 ár, meðaltal sköpulags var 8,015, meðaltal hæfileika 8,215 og meðaltal aðaleinkunnar 8,145. Glæsilegur árangur, en hvað er það sem mestu skiptir í ræktun að mati þeirra? „Því er nú auðsvarað það er gott tölt og gott geðslag.“ Þeim Hörpu og Birni Grétari virðist hafa tekist vel upp við það ræktunarmarkmið því þessir tveir eiginleikar, tölt og samstafsvilji, eru þeir eiginleikar sem hrossin þeirra hlutu hæst fyrir í ár en meðaltal þeirra þar er 8,75.

Stóðhesturinn Knár frá Ytra-Vallholti er úr ræktun þeirra en í eigu Egger-Meier Önju knapi: Bjarni Jónasson Ljósmynd: Carola Krokowski og Klaus Ohneberg
En nú þegar kynbótaárinu 2020 er lokið hvað er það sem stendur upp úr hjá hrossaræktendunum að Ytra-Vallholti? „Það var alveg yndislegt þegar kynbótadómaranir loksins hækkuðu Dís frá Ytra-Vallholti í 9 fyrir tölt á yfirliti en hún er alveg yndisleg hryssa. Þá var það einnig frábært þegar Reising hækkaði um 80 kommur milli sýninga eftir að hafa fengið einn dunk af járni í millitíðinni“ En hvernig blasir framtíðin við, hvað spennandi tryppi eru nú í tamningu? „Það eru þrjár hryssur sem við bindum vonir við þær Kórónu, sem er undan áðurnefndri Glettu og Hring frá Gunnarsstöðum I, Aþena, sem er undan Kötlu frá Ytra-Vallholti og Vita frá Kagaðarhóli og svo Rún sem er undan Brynju og Bikari frá Ytra-Vallholti sem er 1.verðlauna stóðhestur sem við seldum út.“
Eiðfaxi þakkar þessum hressu hrossaræktendum í Skagafirði fyrir spjallið og óskar þeim áframhaldandi velgengni við ræktun íslenska hestsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH