Greinargerð LH með knapaverðlaunum ársins

  • 18. desember 2020
  • Fréttir

Landssamband hestamannafélaga hefur sent frá sér eftirfarandi greinargerð með knapaverðlaunum ársins 2020:

Skeiðknapi ársins

Konráð Valur Sveinsson​ er skeiðknapi ársins 2020 og er það í þriðja skiptið á jafnmörgum árum sem hann hlýtur þann titil. Hann og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu eiga besta tíma ársins í öllum vegalengdum skeiðkappreiða. Á meðal afreka hans má nefna það að hann sigraði keppni í 250 og 100 metra skeiði á Reykjavíkurmeistaramóti á Kjarki og þá var hann heildarsigurvegari á Skeiðleikum Skeiðfélagsins. Því til viðbótar má nefna að hann reið fjórum hrossum á undir átta sekúndum í 100 metra skeiði í ár. Konráð Valur hefur þrátt fyrir ungan aldur skipað sér í hóp sigursælustu skeiðknapa frá upphafi.

 

Íþróttaknapi ársins

Ragnhildur Haraldsdóttir​ er íþróttaknapi ársins 2020. Hún, Úlfur frá Mosfellsbæ og Vákur frá Vatnsenda stóðu sig mjög vel á árinu og voru í úrslitum á flestum af þeim mótum sem þau mættu og stóðu iðulega efst á palli. Ragnhildur stendur efst á stöðulista með Vák í V1 og 6.sæti í T1. Þau urðu varð í fyrsta sæti í V1 ár Reykjavíkurmeistaramótinu og voru í A-úrslitum í T1. Ragnhildur hlaut einnig reiðmennskuverðlaun FT á því móti. Ragnhildur er vel að útnefningunni komin mætir ávallt vel undirbúin til leiks með bros á vör og sanngjarna reiðmennsku að leiðarljósi.

 

Efnilegasti knapi ársins


Glódís Rún Sigurðardóttir​ er efnilegasti knapi árisins 2020. Hún hefur staðið sig vel á keppnisbrautinni bæði í íþrótta- og gæðingakeppni undanfarin ár. Glódís Rún hefur staðið í fremstu röð á þeim mótum sem hún tekur þátt í. Glódís Rún varð í fyrsta sæti í T2, V1 og samanlagður fjórgangssigurvegari á Reykjavíkurmeistaramótinu. Glódís Rún stendur efst á stöðulista í V1, T2, V2 og F2 ungmenna. Glódís Rún er fyrirmynd innan vallar sem utan.

 

Gæðingaknapi ársins


Hlynur Guðmundsson ​er gæðingaknapi ársins 2020. Hann hefur verið ötull með Trommu frá Höfn í B-flokki gæðinga í sumar. Hlynur varð annar á Gæðingaveislu Sörla með einkunnina 8,93 og einnig annar á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni með einkunnina 8,76. Sigraði félagsmót Hornfirðings með einkunnina 8,90 og einnig sigraði hann Gæðingamót Geysis með einkunnina 8,93. Hlynur er í 6. sæti á stöðulista í B-flokki gæðinga. Tromma frá Höfn og Hlynur standa efst á WR lista í B-flokki gæðinga með einkunnina 8,58.

 

Keppnishestabú ársins


Árbæjarhjáleiga 2
​ er keppnishestabú ársins 2020. Mörg hross frá Árbæjarhjáleigu 2 hafa staðið sig gríðarlega vel á keppnisbrautinni á liðnu keppnistímabili. Atkvæðamestur er skeiðgarpurinn Kjarkur, tvöfaldur Reykjavíkurmeistari, í 100m skeiði og 250m skeiði, er með besta tíma í 100m skeiði á árinu 7,32 sek., besta tímann í 150m skeiði 14,17 sek. og besta tímann í 250m skeiði 21,57 sek. Þrjú hross frá Árbæjarhjáleigu 2 voru í einu af 10 efstu sætum í fimmgangi á Þýska Meistaramótinu en það voru Skúli í öðru sæti með einkunnina 7,24, Eldur í 4. sæti eftir forkeppni með einkunnina 6,97 og Ófeigur í 2. sæti í b-úrslitum (7. sæti) með einkunnina 6,93. Aría frá Árbæjarhjáleigu 2 keppti í flokki ungmenna á Þýska Meistaramótinu og sigraði V1 með einkunnina 6,77 og varð einnig í þriðja sæti í T1 á sama móti.

 

Kynbótaknapi ársins

Við val á kynbótaknapa ársins var horft til meðaleinkunnar, meðalaldurs og fjölda sýndra hrossa. Auk þess var stuðst við áverkaskráningu á kynbótasýningum.

Árni Björn Pálsson​ er kynbótaknapi ársins 2020. Er þetta í þriðja skiptið í röð sem Árni Björn hlýtur þá útnefningu og fjórða skiptið alls. Hann átti frábært ár á kynbótabrautinni en hann sýndi alls 87 hross í fullnaðardómi í ár í 100 sýningum. Meðalaldur þeirra hrossa er 5,9 ár og er meðaltal hæfileika 8,12, meðaltal sköpulags 8,23 og meðaltal aðaleinkunnar 8,16. Árni er öðrum knöpum fyrirmynd í háttvísi og framkomu og þá er vert að taka fram að af þessum 100 sýningum voru 93% þeirra áverkalausar.

 

Knapi ársins

Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2020 og er það í annað sinn sem hann hlýtur þann heiður. Jakob Svavar er fjölhæfur afreksknapi sem tók þátt í nær öllum keppnisgreinum sem í boði eru á þeim mótum sem haldin voru í ár og var reglulega í úrslitum eða á meðal sigurvegara á þeim. Hann náði góðum árangri í íþróttakeppni og þá sérstaklega á þeim Hálfmána frá Steinsholti í tölti og fjórgangi og Konsert frá Hofi í tölti. Þá má einnig nefna Erni frá Efri-Hrepp sem hlaut 8,08 í gæðingaskeiði og Vallarsól frá Völlum og Kopar frá Fákshólum sem hann keppti á í slaktaumatölti með góðum árangri. Hann er á meðal fimm efstu knapa á stöðulistum ársins í öllum áðurnefndum keppnisgreinum. Hann tók þátt í skeiðgreinum á Jarli frá Kílhrauni og er besti tími þeirra í 100 metra skeiði 7,57 sekúndur. Hann sýndi 40 hross í kynbótadómi í 46 sýningum með frábærum árangri og átti margar eftirminnilega sýningar á árinu. Hann tók þá einnig þátt í gæðingakeppni á Nökkva frá Syðra-Skörðugili og var m.a í A-úrslitum í A-flokki á Gæðingamóti Geysis. Jakob Svavar er fagmaður fram í fingurgóma með háttvísi, sanngjarna reiðmennsku og íþróttamannslega framkomu að leiðarljósi, hann er knapi ársins 2020.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link