Grímur er moli
Fyrir tveimur árum eða svo kynnti Hestablaðið til sögunnar ungan stóðhest í eigu Daníels Jónssonar og Hilmars Sæmundssonar. Folinn var virkilega stór og föngulegur, léttbyggður og fátahár. Hann var ekki sýndur fjögra vetra en Daníel stóð á því fastar en fótunum að hér væri á ferðinni mikið gæðingsefni. Honum skjátlaðist ekk en illu heilli, fyrir hrossaræktendur hér á landi, var Grímur seldur til útlanda á fimmta vetur. Kaupandinn er Agnar Snorri Stefánsson sem búsettur er í Danmörku.
Grímur er undan Þyti frá Neðra-Seli, Ófeigssyni frá Flugumýri, og Söru frá Horni í Hornafirði. Hann var sýndur í fyrra og hlaut fínan dóm, 8,46 fyrir sköpulag og 8,38 fyrir kosti. Í aðaleinkunn 8,41. Hann er með 9,0 fyrir frampart og fótagerð og 9,5 fyrir fet. Hann er með 7,0 fyrir brokk, en enginn vafi er á að það mun styrkjast. Hér er á ferðinni glæsilegur gripur sem einnig er efni í topp keppnishest. HÉR má sjá nýlegt myndband af Grími, sem kominn er í létta þjálfun hjá Agnari.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH