Grýta með 8,40 fyrir hæfileika 4.vetra

  • 11. júní 2013
  • Fréttir
Grýta með 8,40 fyrir hæfileika 4.vetra

Bylgja Gauksdóttir sýndi 4.vetra hryssuna Grýtu frá Engjavatni á Gaddstaðaflötum í gær. Þær stöllur gerðu sér lítið fyrir og nældu sér í 8,40 fyrir hæfileika en Grýta hlaut 7,74 fyrir sköpulag og í aðaleinkunn 8,13. Grýta er undan Glotta frá Sveinatungu og Gerðu frá Gerðum, og er því hálfsystir Héðins frá Feti. 

Grýta er í eigu Mara Staubli og er þetta því enn einn gæðingurinn sem Mara eignast en fyrir á hún Hóf frá Varmalæk og Ósk frá Þingnesi

Óskar Eiðfaxi þeim Möru og Bylgju til hamingju með árangurinn 

Dómur Grýtu:

IS2009287657 Grýta frá Engjavatni

Örmerki: 352098100024100
Litur: 8300 Vindóttur/jarp- einlitt
Ræktandi: Mara Daniella Staubli
Eigandi: Mara Daniella Staubli
F.: IS2002136610 Glotti frá Sveinatungu
Ff.: IS1988165895 Gustur frá Hóli
Fm.: IS1990236610 Sonnetta frá Sveinatungu
M.: IS1995284600 Gerða frá Gerðum
Mf.: IS1984165010 Baldur frá Bakka
Mm.: IS1988237876 Litbrá frá Hömluholti
Mál (cm): 134 – 129 – 60 – 140 – 26,5 – 17,0
Hófa mál: V.fr.: 8,1 – V.a.: 7,6
Sköpulag: 7,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 7,5 – 7,0 – 7,0 = 7,74
Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 = 8,40
Aðaleinkunn: 8,13
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Bylgja Gauksdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link