Guðmann sigraði fimmgangskeppni á Flúðum
Fimmgangskeppni Uppsveitadeildar fór fram í gærkvöldi í reiðhöllinni á Flúðum.
Eftir forkeppni var efstur Guðmann Unnsteinsson á Prins frá Langholtskoti, fast á hæla hans komu svo Ása Ljungberg og Nói frá Garðsá, Sólon Morthens og Svali frá Tjörn og María Birna Þórarinsdóttir og Spes frá Fellskoti.
Hörð barátta var í b-úrslitum um sæti í a-úrslitum og munaði einungis 0,02 á efstu tveimur hestunum. Það voru þeir Bjarni Bjarnason á Eldingu frá Laugarvatni og Knútur Ármann á Hruna frá Friðheimum sem voru jafnir fram á síðasta skeiðsprett og niðurstaðan var að lokum sú að Knútur og Hruni sigruðu b-úrslitin og hrepptu sæti í a-úrslitunum.
Guðmann Unnsteinsson hélt sínu sæti í úrslitum og sigraði fimmganginn á Prins frá Langholtskoti. Annar varð Sólon Morthens á Svala frá Tjörn og þriðja var Ása Ljungberg á Nóa frá Garðsá.
Staðan í stigakeppninni breyttist lítillega eftir þessa grein, en allt getur gerst þegar tvær greinar eru eftir, tölt og skeið og er það jafnframt lokamótið í þessari mótaröð sem haldið verður föstudagskvöldið 11. maí.
Nánari dagskrá og upplýsingar um deildina má finna á www.smari.is
Einstaklingskeppnina leiðir Sólon Morthens, stigi þar á eftir kemur svo Ása Ljungberg og því næst Guðmann Unnsteinsson.
Liðakeppnina leiðir LIÐIÐ HANS HJALLA en fast á hæla þeirra kemur lið ÁSTUNDAR.
Meðfylgjandi eru helstu úrslit
FIMMGANGUR
A-úrslit 1. flokkur
1 Guðmann Unnsteinsson/Prins frá Langholtskoti 7,36
2 Sólon Morthens/Svali frá Tjörn 6,71
3 Ása Ljungberg/Nói frá Garðsá 6,52
4 Knútur Ármann/Hruni frá Friðheimum 6,31
5 María Birna Þórarinsdóttir/Spes frá Fellskoti 5,83
FIMMGANGUR
B-úrslit 1. flokkur
1 Knútur Ármann/Hruni frá Friðheimum 5,95
2 Bjarni Bjarnason/Elding frá Laugarvatni 5,93
3 Einar Logi Sigurgeirsson/Brúður frá Syðra-Skörðugili 5,62
4 Hermann Þór Karlsson/Kviða frá Rútsstaða-Norðurkoti 5,29
5 Gunnar Jónsson/Vífill frá Skeiðháholti 3 4,93
EINSTAKLINGSKEPPNI
1 Sólon Morthens 26
2 Ása Ljungberg 25
3 Guðmann Unnsteinsson 19
4-5. María Þórarinsdóttir 17
4-5. Knútur Ármann 17
6-7. Hermann Þór Karlsson 9
6-7. Einar Logi Sigurgeirsson 9
8 Líney Kristinsdóttir 8
9-10. Sigurbjörg Bára Björnsdóttir 7
9-10. Bjarni Birgisson 7
LIÐAKEPPNI
1 LIÐIÐ HANS HJALLA 48
2 ÁSTUND 45
3 JÁVERK 26,5
4 LAND&HESTAR/NESEY 14
5 MOUNTAINEERS OF ICELAND 13
6 ÞÓRISJÖTNAR 12
7 BYKO 6,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH