Guðmar er efnilegasti knapi ársins
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er efnilegasti knapi ársins 2026. Aðrir tilnefndir voru Elva Rún Jónsdóttir, Guðný Dís Jónsdóttir, Sara Dís Snorradóttir og Dagur Sigurðarson.
Efnilegasti knapi ársins 2026 er Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíói. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Guðmar átti einstakt keppnisár, hann varð tvöfaldur Landsmótssigurvegari þegar hann sigraði B flokk ungmenna á Gretti frá Hólum og A flokk ungmenna á Kalsa frá Þúfum. Hann er einnig þrefaldur Íslandsmeistari í fjórgangi og tölti í ungmennaflokki á Gretti og í fimmgangi í ungmennaflokki á Kalsa frá Þúfum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er efnilegasti knapi ársins 2026“
Eiðfaxi óskar Guðmari innilega til hamingju með árangur ársins!
Aðrir tilnefndir voru:
- Dagur Sigurðarson
- Elva Rún Jónsdóttir
- Guðný Dís Jónsdóttir
- Sara Dís Snorradóttir
Margareterhof er selt