Guðmundur Norðurlandameistari í gæðingaskeiði
Það var æsispennandi keppni í gæðingaskeiði í fullorðinsflokki. Tuttugu keppendur tóku þátt og áttu Íslendingar þar einn fulltrúa, Begga Eggertsson og Fjalladís frá Fornusöndu, fyrrum heimsmeistara í greininni.
Guðmundur Einarsson og Draumur från Tängmark áttu bestu sprettina og eru Norðurlandameistarar í greininni. Þeir keppa fyrir hönd Svíþjóðar líkt og Wictoria Gren og Kjarval fra Søtofte en þau nældu sér í silfrið með 7,50 í einkunn. Með sömu einkunn en raðast neðar varð svo Beggi Eggertsson og Fjalladís frá Fornusöndum með 7,50 í einkunn.
Rasmus Møller Jensen varð í fjórða á Hörpu frá Höskuldsstöðum en hún var í íslenska landsliðinu á síðasta heimsmeistaramóti og varð hún og Jón Ársæll Bergmann heimsmeistarar í greininni í ungmennaflokki.
Hægt er fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV en allar niðurstöður, ráslista og annað er hægt að nálgast á snjallforritinu HorseDay.
Niðurstöður úr gæðingaskeiðinu meistaraflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Gudmundur Einarsson | Draumur från Tängmark | 7,79 |
| 2 | Wictoria Gren | Kjarval fra Søtofte | 7,50 |
| 3 | Beggi Eggertsson | Fjalladís frá Fornusöndum | 7,50 |
| 4 | Rasmus Møller Jensen | Harpa frá Höskuldsstöðum | 7,42 |
| 5 | Steffi Svendsen | Bósi frá Húsavík | 6,96 |
| 6 | Liv Runa Sigtryggsdottir | Baltasar frá Strandarhjáleigu | 6,83 |
| 7 | Christina Lund | Gulltoppur frá Selfossi | 6,67 |
| 8 | Anne Frank Andresen | Vökull frá Leirubakka | 6,63 |
| 9 | Magnus Skulason | Framherji frá Skipaskaga | 6,00 |
| 10 | Viivi Soimes- Mattila | Mestur fra Lífsvatn | 5,75 |
| 11 | Katie Sundin Brumpton | Kolbeinn från Fögruhlíð | 5,50 |
| 12 | Madelen Johansson | Sjarmi från Kristineberg | 5,17 |
| 13 | Bjarne Fossan | Valíant fra Fossan | 5,04 |
| 14 | Maren Øyo | Abel fra Røysland | 4,29 |
| 15 | Robin Haraldsen | Páfi frá Kjarri | 4,21 |
| 16 | Daníel Ingi Smárason | Sif från Lindhof | 4,04 |
| 17 | Elsa Teverud | Kolskeggur från Gunvarbyn | 3,75 |
| 18 | Anne Stine Haugen | Harpa fra Gavnholt | 3,71 |
| 19 | Sigurður Óli Kristinsson | Lótus fra Søgård | 3,21 |
| 20 | Stian Pedersen | Adam fra Jakobsgården | 0,58 |
Guðmundur Norðurlandameistari í gæðingaskeiði
Endurtók leikinn tíu árum seinna