Guðni Th. og Eliza Reid brugðu sér á hestbak
Forseti Íslands Hr. Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, forsetafrú, ásamt börnum eyddu helginni í Skagafirði.
Þau komu m.a. við á bænum Syðra-Skörðugili hjá þeim Elvari Einarssyni, Sigríði Fjólu Viktorsdóttur og fjölskyldu þar sem þau fóru m.a á hestbak og kíktu á lömb og annað er tengist búskapi.
Guðni hefur sýnt hestamennsku mikla athygli m.a. verið gestur á Heimsmeistaramótum íslenska hestsins og talað um mikilvægi hrossastofnsins varðandi landkynningu og Ímynd Íslands út á við.
Að Syðra-Skörðugili er rekinn myndarlegur búskapur með sauðfé og hesta ásamt hestatengdri ferðaþjónustu.
Á mynd sem fylgir fréttinni er ekki annað að sjá en þau sómahjón, Guðni Th og Eliza Reid, taki sig vel út á hestbaki og njóti sín í Skagafirði.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV