Gull, silfur og brons til Íslands
F.v. Sara Dís og Nökkvi, Hekla Rán og Tindur og Jón Ársæll og Viskusteinn. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/Clfoto
Yfirburðir íslensku ungmennanna í B-flokki voru þó nokkrir í A-úrslitum sem lauk nú rétt í þessu.
Siguvegari er Jón Ársæll Bergmann á Viskusteini frá Íbishóli með einkunnina 8,88 og Norðurlandameistari. Í öðru sæti varð Hekla Rán Hannesdóttir á Tindi frá Árdal með 8,79 í einkunn og í þriðja sætinu Sara Dís Snorradóttir á Nökkva frá Syðra-Skörðugili með 8,71.
Glæsilegur árangur íslensku ungmennanna í þessari grein.
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jón Ársæll Bergmann | Viskusteinn frá Íbishóli | 8,88 |
| 2 | Hekla Rán Hannesdóttir | Tindur frá Árdal | 8,79 |
| 3 | Sara Dís Snorradóttir | Nökkvi frá Syðra-Skörðugili | 8,71 |
| 4 | Elisa Lund Iskov | Þormar frá Neðri-Hrepp | 8,46 |
| 5 | Julie Thorsbye Andersen | Kolbakur frá Morastöðum | 8,45 |
| 6-7 | Bianca Söderholm | Skálmöld frá Skáney | 8,44 |
| 6-7 | Gry Kirstine Vestergaard Jensen | Neisti frá Lækjarbotnum | 8,44 |
| 8 | Lowa Walfridsson | Seifur från Skälleryd | 8,40 |
Gull, silfur og brons til Íslands
Endurtók leikinn tíu árum seinna