Gullin til Austurríkis og Svíþjóðar í 100 m. skeiðinu
Tæpt var það. Eftir fyrri sprett töldu íslendingar nokkuð öruggt að gullið væri þeirra í 100 m. skeiði í fullorðinsflokki en Teitur Árnason á Drottningu frá Hömrum II átti langbesta tímann 7,29 sek. Lengi er von á einum og Helga Hochstöger (AT) á Nóra von Oed sem hafði farið fyrri sprettinn á 7,50 sek. bætti heldur betur í og hrifsaði gullið af okkur en hún var 0,02 sek. fljótari en þau Teitur og Drottning.
Hans Þór Hilmarsson og Jarl frá Þóroddsstöðum enduðu í fjórða sæti, Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum í fjórða og Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri í níunda sæti.
Ungmennin stóðu sig líka með ágætum. Þær Sigríður og Ylfa fóru fyrri sprettinn á stökki en þann seinni náðu þær ágætis spretti sem tryggði þeim silfur. Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum II náðu fjórða sætinu. Nú er einnig tímabært að tilkynna það að þau eru orðin Heimsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum. Annar titilinn í hús hjá þessu pari.
Hér fyrir neðan eru efstu 10 í 100 m. skeiðinu en HÉR er hægt að sjá heildarniðurstöður
Fullorðnir – 100 m. skeið
1 Helga Hochstöger Nóri von Oed 7.27″
2 Teitur Árnason Drottning frá Hömrum II 7.29″
3 Filippa Hellten Óðinn from Inchree 7.42″
4 Hans Þór Hilmarsson Jarl frá Þóroddsstöðum 7.45″
5 Elvar Þormarsson Fjalladís frá Fornusöndum 7.45″
6 Laura Enderes Fannar von der Elschenau 7.46″
7 Natalie Fischer Ímnir fra Egeskov 7.50″
8 Gudmundur Einarsson Draumur från Tängmark 7.54″
9 Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2 7.62″
10 Markus Albrecht-Schoch Kóngur frá Lækjamóti 7.70″
Ungmenni – 100 m. skeið
1 Alicia Palm Ljúfa från Ekeholm 7.65″
2 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Ylfa frá Miðengi 7.70″
3 Josephine Williams Lér frá Valhöll 7.80″
4 Rebecca Hesselbjerg Taulborg Tindra fra Kristine Holm 7.82″
5 Benedikt Ólafsson Leira-Björk frá Naustum II 7.93″
6 Freja Løvgreen Gandrup Fjölvi fra Hedegaard 7.94″
7 Lill Kirsten Gilja Loki fra Tyse 8.08″
8 Lisa Sophie Ortuno Stühring Elja vom Hollerbusch 8.10″
9 Johanna Osterkorn Björt frá Bitru 8.28″
10 Gerda-Eerika Viinanen Svala frá Minni-Borg 8.37″
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH