Gústaf og Björk í 4. sæti í T2 ungmenna
Charlotte Passau ríður sigurhring
Úrslitum í slaktaumatölti T2 ungmenna var að ljúka rétt í þessu. Báðir íslensku fulltrúarnir í flokknum komust í A-úrslitin, þeir Gústaf Ásgeir á Björk frá Enni og Arnar Bjarki á Arnari frá Blesastöðum 2A, en nafnarnir drógu sig úr úrslitunum og í staðinn komu inn Carina Perndl og Reidartýr vom Stefanihof frá Austurríki.
Ekki gekk allt sem skyldi hjá Gústafi og Björk, þau komu efst inn í úrslitin og voru efst eftir frjálsu ferðina og hæga töltið. Slaki taumurinn heppnaðist aftur á móti ekki nógu vel og enduðu þau því í fjórða sæti. Engu að síður er þetta frábær árangur hjá þeim Gústaf og Björk.
Hin þýsku Charlotte Passau og Uni vom Kronshof eru því heimsmeistarar ungmenna í slaktaumatölti árið 2013.
Úrslit í T2 ungmenna :
01: 178 Charlotte Passau [YR] [DE] – Uni vom Kronshof [DE2003134879] 6,92
ANY 7,0 – 7,0 – 6,0 – 7,5 – 7,0 = 7,00
SLOW 7,0 – 6,5 – 6,0 – 6,5 – 7,0 = 6,67
NO R 7,0 – 7,0 – 7,0 – 7,0 – 7,0 = 7,00
02: 179 Christopher Weiss [YR] [DE] – Vígur frá Eikarbrekku [IS2004101026] 6,84
ANY 7,0 – 7,0 – 7,0 – 7,0 – 7,5 = 7,00
SLOW 6,5 – 7,0 – 7,0 – 7,0 – 7,0 = 7,00
NO R 6,5 – 7,0 – 7,0 – 6,5 – 6,5 = 6,67
03: 021 Carina Perndl [YR] [AT] – Reidartýr vom Stefanihof [AT2003120386] 6,83
ANY 6,5 – 6,0 – 6,0 – 6,5 – 7,0 = 6,33
SLOW 6,5 – 6,0 – 6,5 – 6,0 – 6,5 = 6,33
NO R 7,0 – 7,5 – 6,5 – 7,5 – 7,5 = 7,33
04: 008 Gústaf Ásgeir Hinriksson [YR] [IS] – Björk frá Enni [IS2003258442] 6,21
ANY 8,5 – 9,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 = 8,50
SLOW 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 = 8,00
NO R 4,5 – 4,5 – 4,0 – 4,0 – 3,5 = 4,17
05: 070 Arnella Nyman [YR] [FI] – Skarði frá Kvistum [IS2003181961] 1,33
ANY 6,5 – 5,5 – 4,5 – 5,0 – 5,5 = 5,33
SLOW 0,0 – 0,0 – 0,0 – 0,0 – 0,0 = 0,00
NO R 0,0 – 0,0 – 0,0 – 0,0 – 0,0 = 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH