Hæfileikabomban Maístjarna

  • 23. desember 2015
  • Fréttir
4 vetra hryssur

Alls voru sýningar 4 vetra hryssna 78 en það er um fjögur prósent allra sýninga. Sýningar 4 vetra hrossa eru ekki í boði í öllum löndum og því hæpið að bera þessa dóma á milli landa. Ef listinn yfir tíu efstu 4 vetra hryssur er skoðaður þá er allar hryssurnar annað hvort frá Svíþjóð eða Íslandi. Maístjarna från Knutshyttan er hæst dæmda fjögurra vetra hryssan í ár en hún er fædd í Svíþjóð. Það var Garðar Gíslason sem sýndi hana en hún hlaut 8,71 fyrir hæfileika og 8,11 fyrir sköpulag. Hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, fegurð í reið og vilja og geðslag.

Önnur er Þökk frá Árbæjarhjáleigu en hún er fyrsta afkvæmi Jarls frá Árbæjarhjáleigu sem kemur í dóm. Þökk var sýnd af Heklu Katharínu Kristinsdóttur en hún hlaut fyrir hæfileika 8,29 og fyrir sköpulag 8,24. Hún hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt. Sara frá Lækjarbrekku er þriðja en hún var sýnd af Friðriki Hrafni Reynissyni. Sara hlaut fyrir hæfileika 8,52 og fyrir sköpulag 7,78. Hún hlaut 9,0 fyrir tölt og vilja og geðslag.

4 vetra hryssur

8.47      Maístjarna från Knutshyttan           Oliver Kvistum   Tilviljun Knutshyttan      Svíþjóð
8.27      Þökk frá Árbæjarhjáleigu II            Jarl Árbæjarhjáleigu II      Þerna Skarði       Ísland
8.22      Sara frá Lækjarbrekku 2    Glæsir Lækjarbrekku 2     Snælda Lækjarbrekku 2    Ísland
8.18      Gerpla från Valne Gård      Garri Reykjavík   Spes Litlu-Tungu 2         Svíþjóð
8.18      Hugrökk frá Ketilsstöðum Natan Ketilsstöðum         Djörfung Ketilsstöðum     Ísland
8.16      Garún frá Garðshorni á Þelamörk    Dofri Steinnesi    Sveifla Lambanesi            Ísland
8.13      Arna frá Ármóti   Álffinnur Syðri-Gegnishólum        Hrefna Vatnsholti Ísland
8.12      Gloría frá Kringlulandi      Álfur Selfossi                  Keila Steinnesi    Ísland
8.10      Óskastund frá Kommu                  Kappi Kommu    Ópera Möðrufelli Ísland
8.08      Harpa från Lilla Sträckås   Kraftur Bringu     Höfn Krikjubæ    Svíþjóð

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link