Hæmir frá Hyldsbæk og Anne Stine Haugen verða ekki með

  • 4. ágúst 2023
  • Fréttir
Fréttir af keppendum á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi

Hæmir frá Hyldsbæk og Anne Stine Haugen mæta ekki á Heimsmeistaramótið til að keppa fyrir hönd Noregs í tölti og fjórgangi. Mikill missir af þeim en Hæmir og Anne Stine hafa náð frábærum árangri og hafa þau m.a. hlotið hæstu einkunn sem gefin hefur verið í forkeppni í fjórgangi í ár eða 8.20.

Tók Anne Stine eftir því í gær að hesturinn sýndi smá helti og eins og staðan er er ekki búið að finna út ástæðuna en það amar ekkert annað að honum eins og einhver bólga eða önnur óþægindi. Anne Stine greindi frá þessu á Facebook síðu sinni og skrifaði jafnframt; „Ferðlag mitt með Hæmi hefur verið töfrum líkast og ég er ótrúlega þakklát. Hann hefur nú þegar náð ótrúlegum árangri þrátt fyrir ungan aldur. Við höfum keppt á móti nokkrum af sterkustu hestum og knöpum heimsins og unnið frábæra sigra. Heimsmeistaramótið var auðvitað aðalmarkmiðið okkar þetta tímabil. Það kemur þó Heimsmeistaramót eftir þetta mót og akkurat núna er mikilvægasta að Hæmir jafni sig fljótt.“

Skráðir varahestar hjá liðinu eru Carolin Storebø á Arnvið frá Hveragerði og Nils á Flaumi frá Sólvangi en líklegt þykir að Carolin og Arnviður muni mæta í stað þeirra Anne Stine og Hæmis.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link