Hærra hlutfall hryssna
Arion frá Eystra-Fróðholti er hæst dæmda kynbótahrossið inn á Landsmót, eins og er.
Nú styttist í Landmótið og er kynbótasýningum að ljúka fyrir mót. Nú í þessari viku eru síðustu sýningarnar en verið er að sýna bæði á MiðFossum og á Hellu. Eins og staðan er núna eru 209 hross komin inn á mót í kynbótadómi, 76 stóðhestar og 133 hryssur.
Fjöldi í hverjum flokki
- Einstaklingssýndir stóðhestar 7 vetra og eldri : 13
- Einstaklingssýndir stóðhestar 6 vetra : 28
- Einstaklingssýndir stóðhestar 5 vetra : 23
- Einstaklingssýndir stóðhestar 4 vetra : 12
- Einstaklingssýndar hryssur 7 vetra og eldri : 34
- Einstaklingssýndar hryssur 6 vetra : 48
- Einstaklingssýndar hryssur 5 vetra : 38
- Einstaklingssýndar hryssur 4 vetra : 13
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári