Hæsti dómur ársins
Nú í dag var yfirlit á kynbótasýningu í Basselthof í Þýskalandi, en þar skaust Arðsdóttirin Auður frá Skipaskaga upp fyrir Kolku frá Hákoti og hlaut 8,68 í aðaleinkunn.
Hér fyrir neðan er dómur hennar en Auður er dóttir Arðs frá Brautarholti og Regínu frá Akranesi en þrjú afkvæmi hennar hafa hlotið 1.verðlaun.
Þetta er sannarlega enn ein skrautfjöðurin í hatt Skipaskagaræktunarinnar en þau hafa tvisvar sinnum verið tilnefnd til ræktunarbús ársins.
Skipaskagahrossin hafa jafnan verið hæst meðal tilnefndra búa fyrir sköpulag en hér sést að þetta eru líka mikil hæfileikahross, en Steðji frá Skipaskaga sem féll frá síðasta vetur eftir erfið veikindi var m.a. hæst dæmda afkvæmi Stála frá Kjarr.
Tölt: 9,0
1) Rúmt 2) Taktgott 3) Há fótlyfta 4) Mikið framgrip
Brokk: 9,0
1) Rúmt 4) Skrefmikið 5) Há fótlyfta
Skeið: 9,5
1) Ferðmikið 2) Takthreint 3) Öruggt 4) Mikil fótahreyfing 6) Skrefmikið
Stökk: 8,5
2) Teygjugott 5) Takthreint
Vilji og geðslag: 9,0
1) Fjör
Fegurð í reið: 9,0
1) Mikið fas 3) Góður höfuðb. 4) Mikill fótaburður
Fet: 6,5
B) Skrefstutt D) Flýtir sér
Hægt tölt: 8,5
Hægt stökk: 9,0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH