Hæstu einkunnir
Árinu fer senn að ljúka og því gaman að líta yfir stöðu mála. Keppnisárið í ár var gott, mörg stórmót voru haldin hér heima sem erlendis en þar ber hæst Landsmótið, Íslandsmótið og Norðurlandamótið. Á næsta ári verða haldnir heimsleikar í Oirschot í Hollandi. Margir eru farnir að undirbúa sig og hafa jafnvel verið að því síðustu ár. Gaman er að skoða hvaða knapar hlutu hæstu einkunnirnar í ár og gefur það örlitla hugmynd um hvaða hestar eru líklegir til að gera góða hluti í Hollandi.
Í nýjasta tölublaði Eiðfaxa eru teknar saman hæstu einkunnir úr íþróttakeppnum á árinu 2016 í öllum greinum íþróttakeppninnar. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH