Hafliði ráðinn liðstjóri íslenska landsliðsins

  • 11. maí 2012
  • Fréttir
Bæði fyrir NM2012 og HM2013

FRÉTTATILKYNNING:

Landssamband hestamannafélaga hefur að tillögu landsliðsnefndar LH ráðið Hafliða Halldórsson sem liðsstjóra íslenska landsliðsins í hestaíþróttum og gildir samningurinn bæði fyrir Norðurlandamótið í Eskilstuna í Svíþjóð í sumar, sem og fyrir Heimsmeistaramótið í Berlin 2013. Mun hann hefja vinnu og undirbúning beggja móta strax.

Hafliða Halldórsson á Ármótum á Rangárvöllum þarf vart að kynna fyrir þjóðinni en hann. Hann er gríðarlega reyndur keppnisknapi, margfaldur Íslandsmeistari og heimsmeistari í tölti 2001 á Valíant frá Heggsstöðum. Hafliði er maður með reynslu og hefur áður verið liðsstjóri landsliðsins bæði á HM og NM og nú síðast á HM í Austurríki.
LH býður Hafliða velkominn til starfa og hlakkar til samstarfs við hann.

Um leið vill landsliðsnefnd LH minna á umsóknarfrest til þátttöku á NM: Norðurlandmót í hestaíþróttum verður haldið dagana 2. -5. ágúst í Eskilstuna í Svíþjóð. Í Eskilstuna eru aðstæður góðar og keppnisvæðið mjög skemmtilegt. 

Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum hestaíþrótta í tveimur aldurflokkum:
•    15 – 21 árs (21 árs á árinu) – Unglingar og ungmenni, alls 8.
•    22 ára og eldri – Fullorðnir, alls 10.

Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn.

Í umsókninni þarf að koma fram: Nafn, heimilisfang, sími, aldur og netfang. Einnig þarf að koma fram keppnisreynsla og telja þarf upp helstu afrek á keppnisvellinum.

Knapar útvega sér hross fyrir mótið sjálfir, í samráði við liðstjóra, en hægt er að aðstoða ungmenni ef þess gerist þörf.

Við hvetjum sem flesta til að sækja um en reynsla af þátttöku á Norðurlandamóti er frábært veganesti fyrir alla hestaíþróttamenn og konur.

Umsóknum þarf að skila inn til Landssambands hestamannafélaga í síðasta lagi 21.maí.

Bréflega: Landssamband hestamannafélaga, Engjavegur 6, 104 Reykjavík.
Tölvupóstur: [email protected]
Fax: 514 4031.

Allar upplýsingar um mótið er hægt að fá á skrifstofu LH í síma 514 4030 eða hafa samband við Hafliða Halldórsson liðsstjóra í síma 896 3636.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link