Hafsteinsstaðir með nýtt lið í áskorendamóti
Áskorendamót Riddara Norðursins verður haldið í Reiðhöllinni Svaðastaðir næstkomandi föstudagskvöld, 13. mars.
„Mótið hefst kl 20.00 og kostar 1000kr inn. Eins og seinustu ár skora Riddarar Norðursins á 4 lið til keppni við sig. 3 af þessum liðum hafa mætt til keppni áður, þau eru: Vatnsleysa Viðar á Björgum Lúlli Matt og með ánægju kynna Riddarar nýtt lið til keppni, Hafsteinsstaði.
Keppt er í tölti, fjórgangi, fimmgangi og skeiði. Hvert lið sendir einn keppenda í hverja grein og einungis eru riðin úrslit. Að sjálfsögðu vinnur svo stigahæsta liðið. Þar sem að maður er manns gaman verða Riddarar með gleði og glens í anddyri reiðhallarinnar að móti loknu og vonast að sjálfsögðu til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH