Hafsteinsstaðir sigra
Hafsteinsstaðir unnu símakosninguna Mynd: Henk Peterse
Á föstudagskvöldi nýliðinnar landsmótshelgar á Hólum var á dagskrá glæsileg sýning ræktunarbúa. Það voru alls 10 bú sem tóku þátt í í ræktunarbússýningunni, en það voru eftirtalin bú. Smellið á nafn þeirra til að sjá nánari upplýsingar:
- Gunnarsstaðir
- Hafsteinsstaðir
- Vatnsleysa
- Íbishóll
- Ytra Vallholt
- Efri-Rauðalækur
- Varmilækur
- Kjarnholt I
- Berg
- Stóra-Vatnsskarð/Kvistir
Hestakostur þessara ræktunarbúa var hver öðrum glæsilegri og áhorfendabrekkan var eitt ánægjubros með aðdáun í augum þegar hver gæðingurinn á fætur öðrum fór um brautina. Gaman var að sjá mismunandi uppsetningu í sýningunni milli búanna svo og áherslur í ræktun hrossanna.
Áhorfendur fengu að velja sitt uppáhaldsbú með símakosningu. Það bú sem hlutskarpast varð í kosningunni voru Hafsteinsstaðir, en þetta var í 4. sinn sem Hafsteinsstaðir vinna í ræktunarbússýningu.
Á laugardagskvöldinu mætti svo sigurbúið aftur í braut ásamt hrossaræktarbúi ársins 2015, Gangmyllan (Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar) og tóku gæðingana til kostanna sem aldrei fyrr.
Forsvarsmönnum ræktunarbúanna og knöpum þeirra eru færðar bestu þakkir fyrir sitt góða framlag og fyrirhöfnina við að undirbúa og koma með hross á ræktunarbússýninguna. Einni ræktunarbússýningu er ekki kastað fram úr erminni sísona.
Sýning ræktunarbúa er skemmtilegur og nauðsynlegur hluti af landsmót og afar ánægjulegt að sjá það besta sem er í boði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH