Hagnaður af Landsmóti sumarsins

  • 19. október 2012
  • Fréttir
Hagnaður af Landsmóti sumarsins

Guðjón Magnússon, gjaldkeri Landsmóts ehf. og Björn Björnsson endurskoðandi LH fóru yfir fjármál Landsmóts ehf. á Landsþingi í dag.

Guðjón sagði að þrátt fyrir bága fjárhagslega stöðu einkahlutafélagsins væri mótið vel rekið en ekki væri hægt að skera meira niður í rekstri þess nema það bitni á þjónustustigi. Félagsleg og fjárhagslega umgjörð þess þyrfti hins vegar að breyta að hans mati og færði Guðjón rök fyrir því að færa rekstur og ábyrgð mótanna meira til hestamannafélaganna, með aðkomu þeirra bæjarfélaga sem hýstu mótið.

Björn kynnti afkomu landsmótsins í sumar. Nettó hagnaður stendur í 10,5 milljónir í dag, en Björn benti á að enn ætti eftir að reka fyrirtækið til áramóta svo talan væri ekki endanleg.

Hlýtur þetta að vera gleðiefni því tekjur mótsins eru með meira móti í samanburði við fyrri ár. Árið 2002 voru tekjur af Landsmóti 6,3 milljónir, 4,4, milljónir árið 2004 og 3,7 milljónir árið 2006. Árið 2008 nam hagnaður Landsmóts svo 17,5 milljónum þegar um 14.000 manns sóttu mótið. Vegna frestunar Landsmóts árið 2010 stóð eignahlutafélagið hins vegar í 29 milljón króna tapi í lok árs 2011.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link