Hagsmunaaðilar taka höndum saman

  • 27. maí 2015
  • Fréttir
Styrkja á ímynd íslenska hestsins á alþjóðavettvangi

Markaðsverkefni hefur verið hrundið af stað í markaðssetningu íslenska hestsins.  Markmiðið er að styrkja ímynd íslenska hestins.  Áherslan verður á verðmætasköpun og gjaldeyrisaukningu tengda greininni. Fjallað er um markaðsátakið í 5. tbl. Eiðfaxa.

Þar er m.a. rætt við Rúnar Þór Guðbrandsson, sem er í verkefnastjórn átaksins. „Hestur sem fær háa einkunn fyrir vilja og geðslag gæti hugsanlega verið með hálfgerðann spennuvilja á meðan hestur sem fær 8 er ofboðslega þjáll og sáttur.“ Rúnar segir stærsta markhópinn vera að leita eftir  öruggum og þjálum hestum en þeir séu ekki á hverju strái og að það þurfi að leggja meiri áherslu á þannig vilja.

Grein þessa má nálgast í 5. tbl. Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link