Hákon gefur kost á sér til stjórnar

  • 16. nóvember 2020
  • Fréttir

Aðsend grein eftir Hákon Hákonarson sem bíður sig fram til stjórnar LH

Framboð til stjórnar LH

 

Nú í haust læt ég af formennsku í Hestamannafélaginu Herði þar sem ég hef verið formaður undanfarin 4 ár. Á þeim tíma hefur verið m.a. lögð áhersla á verklegar framkvæmdir á svæðinu, uppbyggingu aðal reiðleiða félagsmanna, ásamt því að hlúa að æskulýðsstarfinu og reiðskóla fatlaðra.  Reiðskóli fatlaðra barna hefur verið rekinn sl 8 ár af hestamannafélaginu Herði með mjög góðum árangri og erum við Harðarmenn mjög stoltir af því starfi.

 

Mín helstu áherslu- og áhugamál í hestamennsku eru málefni hins almenna hestamanns.  “Að njóta samvistunar við þessi einstöku dýr úti í guðs grænni náttúrunni”  Stöðug samkeppni er um reiðleiðir og þurfum við hestamenn að halda vöku okkar og “berjast” fyrir tilveru okkar og aðbúnaði.   Framtíðin er í börnunum og til þess að vel eigi að fara þarf að standa betur að nýliðun.  Þar er hestamennskan í samkeppni við aðrar íþróttagreinar, íþóttagreinar sem búa við allt aðra aðstöðu en hestamannafélögin geta boðið. Þessu þarf að breyta og þar á LH að vera í fararbroddi.

 

Fyrir hvað stendur LH? Stendur jú fyrir landsmóti annað hvert ár, en hvað fleira?  Frá alltof mörgum hestamönnum heyrist að það eina sem LH standi fyrir sé að plokka peninga af aðildarfélögunum?  Auðvitað er það ekki alveg rétt, en bragð er af ef barnið finnur.   LH þarf að móta sér stefnu um hvernig samtökin geta nýst aðiildarfélögunum sem best, sem og hinum almenna hestamanni.  LH á að vera í forystu í sameiginlegum hagsmunamálum eins og reiðvegagerð, nýliðun og öryggismálum.  Hestaíþróttin er 3ja fjölmennasta íþróttagreinin og ein sú elsta, en það heyrist ekkert í hestamönnum nema annað hvert ár á Landsmóti!

 

Til þess að vinna þessum hugaðrefnum mínum enn frekara brautargengis hef ég ákveðið að gefa kost á mér til stjórnarsetu í LH á næsta landsþingi og hef ég þegar tilkynnt kjörnefnd um framboðið.

 

Ég hef verið í eigin rekstri og rekið fyrirtæki í áraraðir, með góðum árangri og setið í stjórn fjölmargra félagasamtaka í meira en 20 ár. En þó að LH séu félagasamtök þá er það samt svo að LH er stórt félag og það þarf að reka það að miklu leyti eins og fyrirtæki, enda miklir fjárhagslegir hagsmunir undir fyrir hestamennskuna í landinu. Þó að félagsstarfið sé að miklu leiti drifið áfram af fólki í sjálfboðastarfi þá er það nú samt þannig að hjá LH starfa að jafnaði 2-3 starfsmenn í launuðum störfum fyrir utan þjálfara og sérhæft starfsfólk afreksmála, þannig að töluverður mannafli er til staðar innan samtakanna.

 

Stór samtök þurfa að hugsa bæði um félagslega þáttinn, en einnig eins og fyrirtæki. Fyrirtæki gera áætlanir, (markaðsáætlanir, kynningaáætlanir, fjárhagsáætlanir, jafnréttisáætlanir, öryggisáætlanir o.s.frv.) fara í stefnumótun, hlusta eftir skoðunum og vilja viðskiptavina (í tilfelli LH aðildarfélaganna og félagsmanna þeirra), og móta sér framtíðarsýn á þeim sviðum sem skipta hvað mestu máli.

Til þess að árangur náist þarf að setja sér raunhæf en háleit markmið, hafa skýra sýn og móta sér verklag og áætlun um það hvernig á að komast þangað.

 

Því miður virðist sem slík vinna hafi mætt afgangi hjá LH, ef hún hefur á annað borð farið fram að einhverju marki. Einhver áform hafa verið uppi um að fara í slíka vinnu og hafa þau skotið upp kollinum annað slagið síðustu árin, en ekki er að sjá að þetta hafi farið af stað af neinni alvöru.

Eina stefnan sem séð verður að hafi verið unnin með markvissum hætti er afreksstefnan og utanumhald afreksmála, sem drifin hefur verið áfram af landsliðnenfnd og starfsfólki LH.

 

Ég deili skoðunum með Guðna Halldórssyni formannsframbjóðanda LH, og fleirum, um það hversu mikilvægt það er að LH geri sig gildandi á sem flestum sviðum og fari að líta á sig sem þau stóru og öflugu samtök sem LH svo sannarlega eru. Að LH sé öflugur málsvari aðildarfélaganna og allra hestamanna í landinu. Ég vil að gerð verði gangskör í nýliðunar-, markaðs- og kynningarmálum samtakanna og að samtökin setji sé skýr markmið til lengri tíma. Þessi árangur mun ekki nást nema með markmiðssetningu, stefnumótun og áætlanagerð sem vinna þarf í samvinnu við aðildarfélögin og aðra hagaðila.

 

Niðurlag

Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík, en var svo heppinn að kynnast sveitinni sem barn og unglingur.  Þar vaknaði áhugi minn á dýrahaldi og tengingu við náttúru landins.  Ég er giftur og 9 barna faðir.  Mín hestamennska byggist á reiðtúrum og ferðalögum í góðum félagsskap.  Hef gaman af því að horfa á góða hesta í spennandi keppni.  Ég hef áhuga á því að LH verði öflugur málsvari hestamennskunnar á Íslandi.  Við hestamenn getum deilt um málefni okkar á milli, en út á við séum við ein rödd.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link