„Hálfmáni er frábær karakter sem gaman er að vinna með“
Viðtal við Jakob Svavar Sigurðsson eftir sigur í fjórgangi
Jakob Svavar Sigurðsson stóð uppi sem sigurvegari í gærkvöldi þegar fyrsta keppnisgrein ársins í Meistaradeildinni í hestaíþróttum fór fram. Hann keppti á Hálfmána frá Steinsholti sem er ræktaður af Jakobi en hann er eigandi ásamt Birni Viðari Ellertssyni.
Faðir Hálfmána er Abel frá Eskiholti II og móðir er Birna frá Ketilsstöðum. Í viðtali við Eiðfaxa segir Jakob frá því að það að sigra á hesti úr eigin ræktun geri sigurinn ennþá sætari.
Þá talar hann um það að þó að hann hafi sigraði í fjórgangi að þá sé mikið af stigum eftir í pottinum og hann telur að deildin verði spennandi til enda.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH