Hanna Rún hlaut FT fjöðrina
Hanna Rún Ingibergsdóttir og Hvarmur frá Brautarholti Mynd: Ásta Björk - Björk Media
FT Fjöðrin er veitt af Félagi Tamningamanna fyrir ákveðna sýningu á einum hesti sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
- Reiðfærni þess sem FT fjöðrina hlýtur skal einkennast af léttleika, lipurð og samspili þar sem saman fer einstök útgeislun og jafnvægi.
- Knapi og hestur ljóma af heilbrigði, krafti og gleði.
- Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests.
- Hesturinn sé sjálfberandi, sterkur og mjúkur. Reiðmennska einkennist af samspili og léttleika.
Á liðnu Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna hlaut Hanna Rún Ingibergsdóttir FT fjöðrina fyrir sýningu sína á Hvarmi frá Brautarholti. Þau keppti í tölti í meistaraflokki og enduðu þar í fimmta sæti með einkunnina 8,72 eftir að hafa unnið B úrslit.
Við afhendingu á fjöðrinni var lesinn upp eftirfarandi texti:
„Hanna Rún Ingibergsdóttir hlýtur FT fjöðrina fyrir sýningu sína á Hvarmi frá Brautarholti í
tölti meistaraflokks. Mikil útgeislun einkennir þetta par, léttleiki og hesturinn einstaklega framhár. Reiðmennskan er prúð og falleg. Hanna Rún er kurteis innan vallar sem utan, ávallt vel til höfð og til fyrirmyndar. Innilegar hamingjuóskir Hanna Rún !“

Hanna Rún og Hvarmur við verðlaunaafhendinguna. Við hlið þeirra er Sylvía Sigurbjörnsdóttir formaður FT sem afhenti fjöðurina. Mynd: Gunnhildur Ýrr – draumfaramyndataka
Hanna Rún hlaut FT fjöðrina
Tinni slær heimsmet
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari