Hans-Christian með yfirburðasigur
Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.
Hans-Christian Løwe og Hrannar fra Vivildgård unnu með nokkrum yfirburðum slaktaumatöltið í meistaraflokki. Keppa þeir fyrir Danmörku og hlutu 8,33 í einkunn. Hans hlaut einnig fjaðurverðlaun.
Næst í röðinni var Elin Nilsson og Þokkadís frá Selfossi með 7,58 og þriðja Emilie Saaugaard-Haaning og Vaka fra Nr. Tolstrup með 7,33
| Sæti | Knapi | Hross | Land | Einkunn |
| 1 | Hans-Christian Løwe | Hrannar fra Vivildgård | Danmark | 8,33 |
| 2 | Elin Nilsson | Þokkadís frá Selfossi | Svíþjóð | 7,58 |
| 3 | Emilie Saaugaard-Haaning | Vaka fra Nr. Tolstrup | Danmark | 7,33 |
| 4 | Steffi Svendsen | Bósi frá Húsavík | Danmark | 7,29 |
| 5 | Knút Lützen | Hvinur frá Árbæjarhjáleigu II | Færeyjar | 6,88 |
| 6 | Stian Pedersen | Adam fra Jakobsgården | Norge | 6,33 |
Hans-Christian með yfirburðasigur