Hans Þór íþróttamaður ársins í Rangárþingi eystra

  • 1. september 2026
  • Fréttir

Hans Þór Hilmarsson. Ljósmynd: Vefsíða Rangárþings Eystra

Hans Þór Hilmarsson hlaut nafnbótina íþróttamaður ársins 2025-2026 í Rangárþingi eystra. Frá þessu segir á vefsíðu sveitarfélagsins.

Hann varð fyrir valinu eftir einkar farsælt keppnisár þar sem hann sannaði sig sem einn af fremstu knöpum landsins og þykir hann afar góð fyrirmynd bæði innan vallar sem utan.

Hápunktar á keppnisárinu 2026:

  • Landsmótsmeistari í A-flokki: Hans Þór og Sindri frá Hjarðartúni stóðu uppi sem sigurvegarar á Landsmóti hestamanna á Hólum með glæsilega einkunn, 9,13. Sigur í A-flokki gæðinga er einn virtasti titill sem knapi getur unnið á Íslandi og stendur hann ótvírætt upp úr á árinu.
  • Silfur á Íslandsmóti: Á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði tryggði hann sér annað sætið í 150 metra skeiði á tímanum 14,03 sekúndum, sem jafnframt var fjórði besti skeiðtími ársins.

Það er alltaf gleðilegt fyrir okkur hestamenn þegar afreksíþróttafólk okkar er heiðrað og óskar Eiðfaxi Hans Þór til hamingju með nafnbótina.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link