Hápunktar frá landsmótum 2000-2008 komnir inn á WorldFeng

  • 8. febrúar 2021
  • Fréttir

Úr afkvæmasýningu Kolfinns frá Kjarnholtum á LM 2000 sem nú er aðgengileg á WorldFeng. Mynd: Aðsend

Heilmikið hefur bæst við af myndefni á WorldFeng á síðustu vikum og má þar helst nefna hápunkta frá landsmótum 2000-2008. Þ.e.a.s. verðlaunafhendingar kynbótahrossa, heiðursverðlaun og ræktunabússýningar, úrslit og skeiðkappreiðar.

Einnig eru komin inn myndbönd af þeim 170 kynbótahrossum sem hefðu átt rétt til þátttöku í kynbótasýningu á Landsmóti 2020.

Hestamannafélögum býðst að kaupa aðgang að myndböndunum fyrir 350 kr. á ári fyrir hvern félagsmann 18-69 ára, en almennur aðgangur kostar annars 4.990 á ári fyrir hvern notanda. Tuttugu hestamannafélög hafa þegar keypt aðgang fyrir sína félagsmenn. Það eru félögin Adam, Borgfirðingur, Brimfaxi,  Dreyri, Freyfaxi, Funi, Geysir, Glaður, Grani,  Kópur,  Léttir,  Máni,  Neisti,  Sindri,  Skagfirðingur,  Sleipnir, Snæfellingur, Sóti, Sörli, Trausti ásamt Félagi hrossabænda og nýlega bættist Hestamannafélagið Hörður í hóp þeirra sem hafa keypt aðgang að myndefninu á WorldFeng.

Er þitt félag komið með aðgang fyrir sína félagsmenn?

Mikil söguleg verðmæti liggja í myndböndum frá landsmótum liðinna ára, þarna er skrásett saga landsmóta og kynbótasaga íslenska hestsins.

Þau félög sem hafa áhuga á að kaupa aðgang að myndefninu fyrir sína félagsmenn geta haft samband við skrifstofu LH á netfangið [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link