Anton Páll heldur erindi um stöðu hestamennskunnar

  • 10. nóvember 2014
  • Fréttir
Fimm bú tilnefnd sem ræktunarbú hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga

Haustfundur HEÞ verður haldinn í Hlíðarbæ fimmtudaginn 13 nóv. kl. 20.30 að er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Á fundinn mæta Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir og fer yfir stöðu mála í hrossaræktinni og Anton Níelsson sem verður með erindi um stöðu hestamennskunnar og hrossaræktar.

Þá verður á fundinum veittar viðurkenningar fyrir efstu kynbótahross i hverjum flokki og valið ræktunarbú ársins á sambandssvæði HEÞ

Stjórn HEÞ tilnefnir 5 bú til ræktunarverðlauna HEÞ 2014 og þau eru¸í stafrófsröð: 

Akureyri – Björgvin Daði Sverrisson og Helena Ketilsdóttir
Húsavík – Vignir Sigurólason og Berglind Ragnarsdóttir
Litli- Garður.
Sauðanes.
Torfunes.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link