Haustfundur HEÞ
Hinn árlegi haustfundur HEÞ verður haldinn í Ljósvetningabúð fimmtudaginn 24. nóvember og hefst hann kl. 20:30.
Að þessu sinni verða tvö áhugaverð erindi á dagskrá: Mette Mannseth fjallar um tamningu og þjálfun ungra hrossa og Guðlaugur Antonsson fer yfir árið í hrossaræktinni. Á fundinum verður tilkynnt um val á ræktunarbúi ársins á félagssvæðinu.
Sex bú eru tilnefnd að þessu sinni. Þau eru í stafrófsröð:
- Grund II
- Komma
- Litla-Brekka
- Torfunes
- Ytra-Dalsgerði
- Ytri-Bægisá I.
Sú nýbreytni verður að ræktendur (félagsmenn HEÞ) þriggja efstu hrossa í hverjum flokki á árinu hljóta viðurkenningu. Auk þessu mun efsta hross eftir aldursleiðréttingu (skv. viðmiðun BÍ) hljóta sérstök verðlaun. Allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Kaffiveitingar í boði samtakanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH