Haustfundur HÍDÍ
Næstkomandi fimmtudag 26 október KL 18:00 verður hausfundur HÍDÍ 2017. Fundurinn verður haldinn í fundarsal ÍSÍ Engjavegi 6. Boðið verður uppá léttar veitinga og eru bæði íþrótta og gæðinga-dómarar velkomnir.
Í ár kemur Þorgeir Guðlaugsson til okkar og mun hann fara yfir huglægt mat á frammistöðu í íþróttum og áhrif hugrænna þátta á nákvæmni í dómgæslu.
Þorgeir er með einstaka innsýn í dómaraheim dagsins í dag og hvetjum við alla að mæta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH