Haustfundur Náttfara
Haustfundur Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Funaborg, Melgerðismelum föstudaginn 14. desember kl. 20.30.
„Farið verður yfir stóðhestaval LM2012 af nýútgefnum DVD diski, Trymbill frá Stóra-Ási verður sérstaklega kynntur til sögunnar sem deildarhestur 2013 og Stefán Birgir í Litla-Garði mun grein fyrir hestinum okkar, Hreini frá Litla-Dal, og lýsa gengi tamningar á honum. Önnur mál eru síðan öll þau er fundarmenn vilja. Kaffi á könnunni, snarl í boði Náttfara og veitingasala við hæfi,“ segir í tilkynningu frá stjórn Náttfara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH