Hefur selt rekstur Top Reiter
Ásgeir Svan Herbertsson, einn af eigendum Top Reiter, staðfesti í samtali við Eiðfaxa að rekstur verslunar fyrirtækisins á Íslandi væri seldur. Kaupandinn er Lífland. „Reksturinn verður áfram í óbreyttu formi og verslunin í Ögurhvarfi verður rekin áfram í óbreyttri mynd. Við viljum einbeita okkur að framleiðsluhluta fyrirtækisins sem fer fram í Þýskalandi en við fluttum þangað á síðasta ári,” sagði Ásgeir Svan.
Top Reiter International er þýskt fyrirtæki, með höfuðstöðvar á hestabúgarðinum Hrafnsholti rétt hjá Hannover og eru eigendur feðgarnir Herbert „Kóki” Ólason og Ásgeir Svan Herbertsson.
Þriðja tölublað Eiðfaxa er komið út. Hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Styttu haustið með EiðfaxaTV