Hefur þú lokið skýrsluhaldi í WorldFeng fyrir 2023?
Nú í upphafi árs er gott að huga að því hvort eitthvað er ógert varðandi skráningar í WorldFeng. Hér er bent á það helsta sem gott er að fara yfir í heimarétt WF:
- Er búið að gera grein fyrir fangskráningu? Skráning á fangi er forsenda þess að hægt sé að grunnskrá folöldin sem fæðast í vor.
- Er búið að merkja við þá fola sem voru geltir í sumar?
- Er búið að gera grein fyrir afdrifum hrossa?
- Er litaskráning í lagi?
- Er búið á setja inn nöfn á þau hross sem hafa verið nefnd?
Greinagóðar leiðbeiningar eru að finna á vef RML.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH