Heiðraði minningu þriggja kvenna

  • 16. desember 2014
  • Fréttir
Anna Kristín Hauksdóttir ferðaðist um Ísland á hestum á 32 dögum í sumar.

Þegar Anna Kristín Hauksdóttir kvaddi vinkonu sína í hinsta sinn sagðist hún ætla að ríða þvert yfir Ísland til minningar um hana. Anna gróf upp ferðasögu móður sinnar, og vinkonu, sem lýsti reið þeirra um Ísland, og ákvað hún að fylgja í fótspor þeirra. Ferðina fór hún á 32 dögum í sumar og er hún athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Ekki síst vegna þess að Anna Kristín er 81 árs gömul og hafði sjaldan farið á hestbak áður en hún lagði upp í reisuna löngu.

Í 12. tölublaði Eiðfaxa má lesa viðtal við Önnu Kristínu Hauksdóttur og brot úr ferðasögu vinkvennanna Valgerðar Einarsdóttur og Ástríðar Jósepsdóttur frá árinu 1925.

Tölublaðið kemur út í næstu viku. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link