Heiðurshestur, Landsþing og Orri
Þegar sumrinu sleppti fóru hestamenn inn á við og ræddu stöðu hestamennskunnar og mótuðu framtíðastefnur. Þetta bar til tíðinda í haust:
- Landsþing hestamanna var haldið í október. Mikil dramatík var á landsþinginu og fór það svo að Haraldur Þórarinsson þáverandi formaður LH sagði af sér ásamt allri stjórn LH. Landsþinginu var því frestað og fór fram í byrjun nóvember. Nýr formaður var valin, Lárus Ástmar Hannesson og kosin var ný stjórn.
- Skáreimin var leyfð á ný.
- Breytt var um staðarval Landsmóts hestamanna 2016 en ákveðið var að færa það á Hóla í Hjaltadal.
- Hrossarækt ehf. styrktu reiðþjálfun fatlaðra um rúmar tvær milljónir. Styrkupphæðin er afrakstur stóðhestahappdrættis og uppboðs á folatollum og listaverki.
- Lambanes var valið ræktunarbú ársins.
- Samba frá Miðsitju hlaut Glettubikarinn.
- Ákveðið var að halda Íslandsmót 2015 í Spretti.
- Fjórðungsmót Austurlands mun verða haldið á Stekkhólma í nágrenni Egilsstaða.
- Kynbótajöfur íslenskrar hrossastofnar féll frá en Orri frá Þúfu kvaddi þennan heim í lok september.
- Greinilega hefur dregið úr tíðni áverka í munni frá árinu 2012 bæði í keppni og kynbótasýningu.
- Íslenski hesturinn var valin heiðurshestur Frakklands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH