Heillandi Hafsteinn
Það voru sterk úrslit í A-flokki gæðinga sem var að ljúka rétt í þessu þrátt fyrir að þó nokkrir gæðingar sem vonir voru bundnar við hafi fallið út í forkeppni og milliriðlum.
Svo fór að Hafsteinn frá Vakursstöðum og Teitur Árnason höfðu sigur. „Þetta var bara gaman og alveg geggjað. Hafsteinn er í stöðugri framþróun og hefur engin takmörk. Það er miklu frekar ég sem þarf að stilla þetta af hjá okkur,“ sagði sigurvegarinn að lokum.
Niðurstöðurnar eru sem hér segir:
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Hafsteinn frá Vakurstöðum / Teitur Árnason 9,09
2 Atlas frá Lýsuhóli / Jóhann Kristinn Ragnarsson 8,84
3 Villingur frá Breiðholti í Flóa / Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,82
4 Krókus frá Dalbæ / Sigursteinn Sumarliðason 8,82
5 Nói frá Stóra-Hofi / Daníel Jónsson 8,78
6 Nói frá Saurbæ / Sina Scholz 8,77
7 Sjóður frá Kirkjubæ / Eyrún Ýr Pálsdóttir * 8,58
8 Roði frá Lyngholti / Árni Björn Pálsson 8,52
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH