Heimsmeistaramótið 2025

  • 13. desember 2021
  • Fréttir

Mynd: Isibless.de

Ganga til samingaviðræðna við mótshaldarann ​​í Sviss.

Stjórn FEIF bárust fyrr á þessu ári tvær mjög góðar umsóknir um að skipuleggja heimsmeistaramótið 2025. Annars vegar nálægt Zürich í Sviss og hins vegar í Mannheim í Þýskalandi. Stjórn FEIF sem og heimsmeistaramótsnefnd FEIF metu og ræddu umsóknirnar ítarlega og í kjölfarið ákváðu að ganga til samningaviðræðna við mótshaldarann ​​í Sviss. Mótið mun fara fram á Hardwinkelhof hjá Michele and Thomas Huwiler í Birmenshof nálægt Zurich.

Síðast var heimsmeistaramótið haldið í Sviss árið 2009, eða 12 ár síðan. Þá unnu Íslendingar fjögur gull af níu í íþróttakeppni en Jóhann R. Skúlason á Hvin frá Holtsmúla 1 sigraði töltið og var saman lagður sigurvegari í fjórgangsgreinum, Bergþór Eggertsson sigraði 250m. skeiðið á Lótusi frá Aldenghoor og Rúna Einarsdóttir var samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum á Frey vom Nordsternhof.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link