Heimsmeistarinn efstur
Flokkur 6 vetra hryssna var næst stærsti flokkurinn í ár en alls voru 360 sex vetra hryssur sýndar. Það eru tæp 19% af öllum sýndum hrossum og 28% af dæmdum hryssum. Helmingurinn af efstu hryssunum er fæddar á Íslandi og stendur þar efst fulltrúi Íslands á heimsmeistaramótinu, Garún frá Árbæ. Garún hlaut sína hæstu einkunn á heimsmeistaramótin en hún stóð einnig uppi sem sigurvegari í sínum flokki. Hún er jafn falleg og hún er hæfileikarík en hún hlaut fyrir sköpulag 8,55 og fyrir hæfileika 8,66. Sýnandi Garúnar var Guðmundur F. Björgvinsson.
Önnur er Nípa frá Meðalfelli en hún hlaut 8,90 fyrir hæfileika. Hún hlaut fyrir tölt, stökk, fegurð í reið, hægt tölt og hægt stökk 9,0 og fyrir vilja og geðslag hlaut hún 9,5. Daníel Jónsson sýndi Nípu en þetta var hennar fyrsti kynbótadómur. Þriðja er danska hryssan Árdís fra Guldbæk en hún var þriðja á heimsmeistarmóti. Árdís hlaut 8,68 fyrir hæfileika og 8,31 fyrir sköpulag en það var Rasmus Møller Jensen sem sýndi hana. Árdís hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, skeið og vilja og geðslag.
6 vetra hryssur
8.62 Garún frá Árbæ Aron frá Strandarhöfði Glás frá Votmúla 1 Ísland
8.59 Nípa frá Meðalfelli Orri Þúfu í Landeyjum Esja Meðalfelli Ísland
8.53 Árdís fra Guldbæk Álfasteinn Selfossi Nína Guldbæk Danmörk
8.49 Gletting vom Kronshof Teigur Kronshof Astra Kronshof Þýskaland
8.47 Bylgja frá Sauðárkróki Blær Hesti Glóblesa Skefilsstöðum Ísland
8.44 Líf fra Slippen Garri Reykjavík Andrá Skarði Danmörk
8.43 Kör Ytterbø Sævar Hæli Ríma Kirkjubæ Noregur
8.43 Sif frá Akurgerði II Ómur Kvistum Rönd Akurgerði Ísland
8.42 Strönd frá Kirkjubæ Stormur Leirulæk Hrönn Kirkjubæ Ísland
8.41 Glódís vom Kronshof Depill Votmúla 1 Næpa Kronshof Þýskaland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH