„Heita sætið“ í Eiðfaxa

  • 31. ágúst 2011
  • Fréttir
"Heita sætið" í Eiðfaxa

Nýtt tölublað Eiðfaxa fór í prentun í gær og geta áskrifendur vænst blaðsins uppúr helginni.Í blaðinu nú er mikið efni um Heimsleikana í Austurríki en Eiðfaxi var þar og fylgdist með. Ýmislegt annað efni er í blaðinu,…

meðal annars grein sem nefnist „Heita sætið“ og fjallar hún um hin vandasömu störf dómara. Greinina skrifar Ólafur Árnason en hann er meðal annars dómari í hestaíþróttum. Hér fylgir með stuttur kafli úr greininni.
„Undirritaður hefur bæði setið í hinu funheita sæti dómara og einnig í hægindastól brekkudómarans. Ég get hiklaust sagt að starf mitt sem brekkudómari er mun þægilegra og lausara við gagnrýni en það starf sem krefst þess að ég lyfti spjöldum á loft. Einnig er mjög auðvelt að „sturta“ sýningum úr brekkunni, eða fara með þær í hæstu hæðir.
Við skulum alveg hafa það á hreinu að dómarar eru mannlegir og geta gert mistök, annað væri óeðlilegt, hinsvegar þurfa dómarar líka að vera vissir um það að þeir komi vel undirbúnir til dómstarfa“.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link