Hekla á Hólaskóla

  • 4. október 2012
  • Fréttir
Hekla Katarína Kristinsdótttir byrjaði sem reiðkennari við Hólaskóla í haust.

Hekla Katarína Kristinsdótttir byrjaði sem reiðkennari við Hólaskóla í haust. Hekla útskrifaðist sem tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla fyrir skömmu og er því á heimavelli í kennslunni, ef svo má segja. Í samtali við Islibless.is segir Hekla meðal annars: „Það er mjög gott að vera á Hólum. Það er allt komið á fullt í kennslunni og ér er núna að kenna áfanga sem heitir Þjálfun 1, en það er áfangi þar sem nemendur á öðru ári framhaldsþjálfa hest. Mjög skemmtilegur en jafnframt krefjandi áfangi, bæði fyrir nemendur og kennara. Ég kann vel við mig í kennslunni. Norðlenska loftið fer bara vel í mig og ég hlakka til að takast á við verkefnið,“ segir Hekla.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link