Norðurlandamót Hekla Rán efst í B flokki ungmenna

  • 9. ágúst 2024
  • Fréttir
Forkeppni lokið í B flokki ungmenna á Norðurlandamótinu

Hekla Rán Hannesdóttir og Huginn frá Halakoti er efst eftir forkeppni í ungmennaflokki með 8,55 í einkunn. 16 keppendur voru í ungmennaflokki og áttu íslendingar þar tvo fulltrúa. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Eyvar frá Álfhólum náðu einni inn í úrslit en þeir hlutu 8,51 í einkunn og enduðu í fjórða sæti.

Flottur árangur hjá ungmennunum í íslenska landsliðiðnu en þau hafa staðið sig vel í dag. Hekla efst í B flokki ungmenna og Matthías Sigurðsson og Guðmar Hólm í efstu tveimur sætunum í A flokki ungmenna. Ragnar Snær Viðarsson efstur eftir forkeppni í unglingaflokki og síðan varð Herdís Björg efst eftir forkeppni í slaktaumatölti svo eitthvað sé nefnt.

Niðurstöður – Ungmennaflokkur – Forkeppni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link