Hekla samanlagður sigurvegari fjórgangsgreina
Hekla Katharína Kristinsdóttir varð sigurvegari í samanlögðum fjórgangsgreinum en hún var á hestinum Vígari frá Skarði en Vígar er 15 vetra Ófeigssonur. Vígar og Hekla voru í öðru sæti í fjórgangnum og í því áttunda í töltinu með einkunnina 8,70.
„Þetta var bara gaman. Hann er ofsalega skemmtilegur hestur og svakalega mikill og sterkur karakter. Þetta er einfaldlega besti hestur sem ég hef nokkurn tíman farið á bæði hvað varðar getu og karakter. Vígari finnst gaman að keppa og hann veit að um leið og hann kemur inn á völlinn að þá er „showtime““, segir Hekla Katharína en hún ákvað að draga þau Vígar úr b úrslitunum í tölti og einbeita sér alfarið að fjórgangnum.
Vígar er í eigu systir Heklu, Rakelar Natalie Kristinsdóttur, en Hekla fékk Vígar lánaðan á Íslandsmótið. „Rakel tók þá ákvörðun að fara ekki með Vígar á Íslandsmótið hjá yngri flokkunum og mér fannst svolítil synd að láta þennan spriklandi gæðing, í fullu formi, standa inn í húsi. Þannig að það var tekin sú ákvörðun að ég færi með hann og sé sko ekki eftir því að hafa fengið hann að láni“ segir Hekla hæst ánægð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH