Hélt efsta sætinu
A-úrslit í Netpartatöltinu fóru fram í blíðunni á Brávöllum í gær. Hestakosturinn var góður en svo fór að Helga Una Björnsdóttir hélt efsta sætinu á Vág frá Höfðabakka með einkunnina 8,44. Annar varð Janus Haldór Eiríksson á Barða frá Laugarbakka með 7,89 og Þórdís Erla og Toppur enduðu þriðju.
Niðurstöður í Netpartatölti
1 Helga Una Björnsdóttir / Vág frá Höfðabakka 8,44
2 Janus Halldór Eiríksson / Barði frá Laugarbökkum 7,89
3 Þórdís Erla Gunnarsdóttir / Toppur frá Auðsholtshjáleigu 7,72
4 Kristín Lárusdóttir / Þokki frá Efstu-Grund 7,61
5 Pernille Lyager Möller / Sörli frá Hárlaugsstöðum 7,56
6 Sigursteinn Sumarliðason / Djásn frá Dísarstöðum 2 7,28
Styttu haustið með EiðfaxaTV