„Hér leggjast allir á eitt“
„Hér hefur allt gengið frábærlega þó ég segi sjálfur frá. Glæsilegar sýningar hjá öllum þessu ungu og frábæru keppendum og allt til fyrirmyndar.“ Segir Darri Gunnarsson mótsstjóri Íslandsmóts barna og unglinga sem nú er í fullum gangi á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
Það er hestamannafélagið Sörli sem heldur mótið og allt lagt í sölurnar til að gera framtíðarknöpunum okkar hátt undir höfði. En hvað er framundan um helgina og hvernig er stemningin? „Við erum í dag að ljúka forkeppni í hringvallargreinum og í kvöld verða Íslandsmeistarar í fimi krýndir. Á morgun er svo B-úrslita dagur og skeiðgreinar. Á sunnudaginn verða svo Íslandsmeistarar krýndir með pompi og prakt í hringvallargreinum og því mjög skemmtileg helgi framundan. Veðurspáin er góð og því ætti að vera nóg um dýrðir fyrir þá sem vilja leggja leið sína í Hafnarfjörðinn. Stemningin hér er góð og allir í góðu skapi.“
Þeir sem til þekkja vita að mót sem þessi byggjast á sjálfboðavinnu en er það ekki eins í Sörla? „Hér leggjast allir á eitt til að gera mótið glæsilegt og við erum með frábæra sjálfboðaliða úr Sörla auk þess að hingað hefur komið fólk annarsstaðar að úr öðrum félögum til að hjálpa við að gera mótið gott. Svona mót byggjast á sjálfboðavinnu og að allir leggist á eitt. Svo eru knaparnir svo flinkir. Núna er hádegishlé í tölti unglinga og keppnin hálfnuð samt þarf að fá 7,0 eða hærra til að komast í úrslit, þetta eru alvöru gæði.“ Segir Darri að lokum áður en blaðamaður Eiðfaxa kveður og óskar honum og hans fólki velgengni á mótinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH